Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 23. mars 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Podolski: Þetta var eins og í bíómynd
Mynd: Getty Images
„Þetta var eins og í bíómynd. Við unnum 1-0 og ég skoraði," sagði Lukas Podolski eftir sigur Þýskalands á Englandi í gærkvöldi.

Podolski var að leika kveðjuleik sinn og hann skoraði eina markið með frábæru langskoti.

„Þetta var eins og í mynd. Þetta var frábær leikur, frábær úrslit og frábær leið til að kveðja."

„Ég fékk gæsahúð eftir móttökurnar sem ég fékk,"
sagði Podolski en hann var hylltur af stuðningsmönnum Þýskalands.

Podolski skoraði alls 49 mörk í 130 landsleikjum á ferli sínum með Þýskalandi en hér að neðan má sjá markið glæsilega í gær.



Athugasemdir
banner
banner
banner