fim 23. mars 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Markvörður Kosóvó: Við getum komið Íslandi á óvart
Icelandair
Mynd: Getty Images
Samir Ujkani, markvörður og fyrirliði Kosóvó, hefur áður mætt íslenska landsliðinu.

Ujkani var í marki Albaníu þegar liðið tapaði tvívegis gegn Íslandi í undankeppni HM 2014. Hann vonast eftir betri úrslitum þegar hann spilar með Kosóvó gegn Íslandi annaðk völd.

„Ég spilaði síðast í treyju gegn Íslandi í treyju Albaníu. Ég vonast til að ná jákvæðari úrslitum á föstudaginn," sagði Ujkani við fjölmiðla í Kosóvó.

„Við getum komið Íslandi á óvart. Þeir hafa sterkan en fegurðin við fótboltann er sú að við getum gert þetta."

„Ísland er með mikil gæði í hópnum. Leikmenn þeirra þekkjast vel og við þurfum að vera varkárir í föstum leikatriðum gegn þeim."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner