Leikmenn íslenska landsliðsins fengu í kvöld forsýningu á fyrsta þætti af Asíska draumnum.
Asíski draumurinn hefur göngu sína á Stöð 2 í næstu viku en þeir Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon fara þar á kostum.
Asíski draumurinn hefur göngu sína á Stöð 2 í næstu viku en þeir Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon fara þar á kostum.
Fyrir leiki landsliðsins undanfarin ár þá hefur liðið oft horft saman á bíómyndir fyrir leiki.
Að þessu sinni var horft á Asíska drauminn og ekki er annað að sjá en að leikmenn hafi verið ánægðir með þáttinn.
Veisla. Fyrsti tháttur af #asískidraumurinn pic.twitter.com/QMGwTNksjn
— Aron Einar (@ronnimall) March 23, 2017
@Auddib fyrsti tháttur vidbjódslega fyndin.. kylinga nuddid a odru leveli 😂😂 5 stjörnur af 5 #asískidraumurinn
— Aron Einar (@ronnimall) March 23, 2017
Asíski draumurinn geggjað stöff !! @Auddib @SteindiJR
— Sverrir Ingi Ingason (@SverrirIngi) March 23, 2017
Athugasemdir