Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. mars 2017 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Undankeppni HM: Brasilía vann toppslaginn
Messi og Neymar skoruðu báðir í gærkvöldi
Messi og Neymar skoruðu báðir í gærkvöldi
Mynd: Getty Images
Paulinho setti þrennu í gærkvöldi
Paulinho setti þrennu í gærkvöldi
Mynd: Getty Images
Fjórir leikir fóru fram seint í gærkvöldi í undankeppni HM í Suður-Ameríku. Argentína fékk Suður-Ameríkumeistara Chile í heimsókn og tryggði Lionel Messi Argentínumönnum mikilvægan sigur með marki úr vítaspyrnu.

Venesúela og Perú gerðu 2-2 jafntefli og þá sigraði Paragvæ 2-1 á heimavelli gegn Ekvador.

Brasilía heimsótti Úrúgvæ í toppslag og voru það heimamenn sem byrjuðu betur. Edinson Cavani kom Úrúgvæ yfir með marki úr vítaspyrnu strax á 8. mínútu en tíu mínútum síðar jafnaði Paulinho, fyrrum leikmaður Tottenham.

Í upphafi síðari hálfleiks var Paulinho aftur á ferðinni óg stundafjórðungi fyrir leikslok skoraði Neymar þriðja mark Brasilíumanna. Paulinho fullkomnaði svo þrennuna sína með marki undir lok leiksins.

Brasilía er nú með örugga forystu á toppi riðilsins og fátt virðist geta stöðvað þá á leið sinni til Rússlands. Fjögur efstu liðin komast beint á HM og þá fer liðið í 5. sæti í umspil um sæti á HM. Mikil spenna er á toppnum en aðeins þrjú stig skilja liðin í 2. sæti og 6. sæti að en í 6. sætinu sitja Suður-Ameríkumeistarar Chile.

Argentína 1 - 0 Chile
1-0 Lionel Messi úr víti ('16)

Venesúela 2 - 2 Perú
1-0 Mikel Villanueva ('24)
2-0 Romulo Otero ('40)
2-1 Andre Carillo ('46)
2-2 Jose Paolo Guerrero ('64)

Úrúgvæ 1 - 4 Brasilía
1-0 Edinson Cavani úr víti ('8)
1-1 Paulinho ('18)
1-2 Paulinho ('52)
1-3 Neymar ('75)
1-4 Paulinho ('90)

Paragvæ 2 - 1 Ekvador
1-0 Bruno Valdez ('12)
2-0 Junior Alonso ('65)
2-1 Felipe Caicedo ('70)

Staðan í undankeppninni eftir 13 umferðir:
1. Brasilía 30 stig
2. Úrúgvæ 23
3. Argentína 22
4. Kólumbía 21
5. Ekvador 20
6. Chile 20
7. Paragvæ 18
8. Perú 15
9. Bólivía 7
10. Venesúela 6
Athugasemdir
banner
banner
banner