Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. mars 2017 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tippar á að Vieira muni taka við af Wenger
Patrick Vieira (hér til hægri).
Patrick Vieira (hér til hægri).
Mynd: Getty Images
Paul Merson, sérfræðingur Sky, tippar á að Patrick Vieira muni verða næsti knattspyrnustjóri Arsenal. Hann býst við því að Arsene Wenger taki eitt tímabil í viðbót og leyfi svo Vieira að spreyta sig.

Margir stuðningsmenn Arsenal eru ósáttir með Wenger og vilja sjá hann hverfa á braut. Merson telur þó að Wenger verði áfram, að minnsta kosti í eitt ár í viðbót.

„Eitthvað segir mér að hann (Wenger) muni skrifa undir skrifa undir. Hann er að bíða eftir stórum sigri og hann mun vera eitt ár til viðbótar," sagði Merson.

„Það kæmi mér ekki á óvart ef hann verður áfram í eitt ár og svo komi Patrick Vieira inn."

Vieira er fyrrum fyrirliði Arsenal, en í dag er hann þjálfari hjá New York City FC í Bandaríkjunum. Merson segir að hann sé tilbúinn í að taka við stjórastarfinu hjá Arsenal.

„Hann hefur verið að læra hjá New York City, hann hefur verið hjá Man City og hann mun koma inn með sigurhugarfar. Hann mun ekki taka neinu kjaftæði," sagði Merson að lokum.
Athugasemdir
banner