Komin er inn upptaka af útvarpsþættinum Fótbolta.net sem var á X-inu FM 97,7 í hádeginu. Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson voru í gasklefanum.
Upptökur af öllum þáttum koma á Vísi
Upptökur af öllum þáttum koma á Vísi
Farið var yfir sigur Íslands gegn Kosóvó í undankeppni HM í gær. Ísland vann leikinn 2-1, en Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild karla, mætti og talaði um leikinn í gærkvöldi.
Einnig var hringt til Þýskalands og spjallað við sóknarmanninn öfluga, Alfreð Finnbogason. Hann er að koma til eftir meiðsli og gæti farið að spila með sínu liði á næstu vikum.
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Athugasemdir