Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. mars 2017 17:13
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lengjubikarinn B-deild: Vængir skoruðu þrjú gegn Ægi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn - B-deild karla, riðill 2
Vængir Júpíters 3-1 Ægir
0-1 Þorkell Þráinsson ('25)
1-1 Marinó Þór Jakobsson ('45)
2-1 Marinó Þór Jakobsson ('50)
3-1 Matthías Björnsson ('75)

Vængir Júpíters og Ægir áttust við í riðli 2 í B-deild karla. Vængir Júpíters höfðu betur í leiknum 3-1.

Ægismenn skoruðu hins vegar fyrsta mark leiksins, þar var að verki Þorkell Þráinsson.

Marinó Þór Jakobsson jafnaði metin á 45. mínútu og bætti svo við öðru marki sínu fimm mínútum síðar og Vængir Júpíters komnir með forystuna.

Matthías Björnsson gulltryggði svo sigur Vængja Júpíters þegar fimmtán mínútur voru eftir af leiknum.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner