Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 25. mars 2017 19:00
Dagur Lárusson
Sissoko: Ég ætla ekki að fara
Sissoko ætlar að sanna sig.
Sissoko ætlar að sanna sig.
Mynd: Getty Images
Moussa Sissoko, leikmaður Tottenham Hotspur, segir að hann vilji ekki fara frá liðinu í sumar þrátt fyrir að hafa átt erfitt uppdráttar í vetur.

Sissoko var keyptur til Tottenham á lokadegi félagskiptagluggans síðasta sumar fyrir 30 milljónir punda en hann hefur átt erfitt með að uppfylla væntingar sem voru gerðar til hans.

„Ég ætla ekki að fara í sumar, ég er mjög ánægður hérna og er ákveðinn í því að sanna mig fyrir öllum.” sagði Sissoko.

Sissoko byrjaði síðast leik fyrir Tottenham þann 28. Janúar í bikarleik gegn Wycombe og hann hefur aðeins spilað 58 mínútur fyrir liðið í síðustu 10 deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner