Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. mars 2017 23:00
Dagur Lárusson
Southgate: Gott að eiga Kane inni
Harry Kane meiddist í annað skipti á tímabilinu nú á dögunum
Harry Kane meiddist í annað skipti á tímabilinu nú á dögunum
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, segir að hann sé ánægður að eiga leikmann eins og Harry Kane inni. Samt sem áður er hann ósáttur að hafa ekki ennþá getað valið Kane í hópinn sinn.

Gareth Southgate valdi síðast hóp fyrir landsleik í nóvember en þá var Harry Kane einnig meiddur.

„Það er leiðinlegt að geta ekki ennþá valið Harry Kane, en samt sem áður er það hughreystandi að eiga leikmann eins og hann inni." sagði Southgate.

Harry Kane var myndaður á æfingasvæði Tottenham Hotspur í morgun þar sem að hann horfði á æfingu enska liðsins. Það þótti athyglisvert að Kane var í fullum æfingabúnaði og virtist ekki haltra að neinu leyti. Það ætti að gefa það til kynna að það sé ekki langt í hans endurkomu
Athugasemdir
banner
banner