Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2017 11:02
Hafliði Breiðfjörð
Dublin, Írlandi
Arnór Smárason kallaður í landsliðshóp Íslands
Icelandair
Arnór Smárason hefur verið kallaður í landsliðshóp Íslands.
Arnór Smárason hefur verið kallaður í landsliðshóp Íslands.
Mynd: Getty Images
Arnór Smárason leikmaður Hammarby í Svíþjóð hefur verið kallaður íslenska landsliðshópinn sem mætir Írlandi í vináttulandsleik í Dublin á þrijðudaginn.

Arnór spilaði síðast með landsliðinu í vináttuleiknum gegn Kína 10. janúar síðastliðinn.

Þrír leikmenn sem spiluðu leikinn geg Kosovo í fyrrakvöld urðu aðn draga sig út úr hópnum vegna meiðsla og vegna þessa ákvað Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari að bæta Arnóri við.

Þeir þrír sem drógu sig úr hópnum voru Arnór Ingvi Traustason, Emil Hallfreðsson og Gylfi Þór Sigurðsson.

Leikurinn hefst 18:45 á þriðjudagkvöld í Dublin. Fótbolti.net er á staðnum og kemur með frekari fréttir af liðinu í dag og næstu daga.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner