Roberto Mancini er tilbúinn til þess að taka við Celtic og stýra þeim í Evrópukeppnunum eða taka við ítalska landsliðinu. Hann vill hins vegar ekki snúa aftur í ensku úrvalsdeildinni eða fara til Kína.
Mancini stýrði Manchester City í þrjú og hálft ár og gerði þá að Englandsmeisturum tímabilið 2011-12.
Hann hefur verið orðaður við nokkur lið eftir að hann var rekinn frá Inter en Leicester hafði mikinn áhuga á að fá hann eftir að félagið rak Claudio Ranieri.
Hann sagði við Sunday Post að draumur hans væri að stýra ítalska landsliðinu í framtíðinni.
„Á þessari stundu vil ég halda áfram að stýra félagsliðum. Ég held ég fari ekki til Kína. Þeir hringdu í mig en ég sagði nei, þar sem fyrir mig er besti fótboltinn í Evrópu."
„Ég tel að ég erlendur fótbolti henti mér. Kannski á Spáni eða í Frakklandi. Ég hef nú þegar verið í Englandi og unnið þar," sagði Mancini
„Skoskir áhorfendur eru þeir bestu í heiminum, ég elska þá. Ef Celtic myndi byggja upp nægilega sterkt lið sem myndi alltaf keppa í Meistaradeild Evrópu, þá væri ég til í stýra þeim einn daginn," bætti Mancini við.

Athugasemdir