Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. mars 2017 06:00
Kristófer Kristjánsson
Lengjubikar kvenna: Tindastóll setti fimm
Lovísa Björk og Krista Eik skoruðu báðar fyrir Völsung í gær
Lovísa Björk og Krista Eik skoruðu báðar fyrir Völsung í gær
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Það voru tveir leikir á dagskrá í C deild Lengjubikars kvenna í gær.

Völsungur mætti Einherja á Húsavíkurvelli þar sem úrslitin voru ráðin í hálfleik.

Krista Eik Harðardóttir, Lovísa Björk Sigmarsdóttir og Dagbjört Ingvarsdóttir skoruðu allar fyrir Völsung í fyrri hálfleik og fleiri urðu mörkin ekki.

Völsungur tapaði fyrsta leiknum sínum á mótinu gegn Hömrunum en bættu fyrir það í dag með góðum sigri. Einherji hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa.

Tindastóll vann öruggan 5-0 sigur gegn Fjarðab/Hetti/Leikni í Boganum á Akureyri.

Völsungur 3 - 0 Einherji
1-0 Krista Eik Harðardóttir ('27)
2-0 Lovísa Björk Sigmarsdóttir ('35)
3-0 Dagbjört Ingvarsdóttir ('40)

Tindastóll 5 - 0 Fjarðab/Höttur/Leiknir
1-0 Vigdís Edda Friðriksdóttir ('15)
2-0 Laufey Harpa Halldórsdóttir ('32)
3-0 María Dögg Jóhannesdóttir ('34)
4-0 María Dögg Jóhannesdóttir ('89)
5-0 Kolbrún Ósk Hjaltadóttir ('90)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner