Romelu Lukaku segir að það sé ekkert að því að vera metnaðargjarn eftir fregnir þess efnis að hann hafi hafnað samningstilboði Everton á dögunum.
Lukaku, sem er markahæsti leikmaður Everton, hefur reglulega talað um löngun sína til að spila í Meistaradeild Evrópu en hann vill ekki að þessi metnaður sé lesinn sem hroki.
Lukaku, sem er markahæsti leikmaður Everton, hefur reglulega talað um löngun sína til að spila í Meistaradeild Evrópu en hann vill ekki að þessi metnaður sé lesinn sem hroki.
„Ákvörðunin um framtíð mína hefur verið tekin en ég get ekki talað um það," sagði Lukaku sem á tvö ár eftir af samningi sínum á Goodison Park.
„Það er ekkert að því að hafa metnað en sumt fólk misskilur þar sem ég segi. Ég vil vinna titla og fólk á ekki að taka því sem hroka," sagði Lukaku sem hefur skorað 21 mark í 28 leikjum í úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Athugasemdir