banner
   sun 26. mars 2017 21:38
Kristófer Kristjánsson
Fjölnir semur við króatískan varnarmann (Staðfest)
Fjölnir var að fá liðsstyrk
Fjölnir var að fá liðsstyrk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatíski varnarmaðurinn Ivaca Dzolan hefur samið við Fjölni út tímabilið 2017 en félagið staðfesti þetta á Twitter.

Dzolan er 29 ára gamall miðvörður sem var síðast á mála hjá úrvalsdeildarliðinu NK Osijek síðan árið 2015.

Hann hafði fengið lítið að spila á tímabilinu og fékk sig því lausann frá NK Osijek og nú ljóst að hann mun spila í Grafarvoginum í sumar.

Fjölnir hafði verið í miðvarðarleit eftir að ljóst var að Tobias Salquist yrði ekki áfram hjá liðinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner