Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. mars 2017 06:00
Stefnir Stefánsson
Ribery: Hefði getað gengið til liðs við Man Utd og Chelsea
Mynd: Getty Images
Frank Ribery, leikmaður Bayern Munich, greindi frá því að hann hefði hæglega getað yfirgefið þýska félagið fyrir Manchester United eða Chelsea fyrir 10 árum síðan.

Ribery hefur hefur spilað 343 leiki fyrir Bayern og hefur í þeim skorað 109 mörk. Þá hefur hann tekið þátt í því að skila 18 bikurum í hús fyrir Bayern. Þar af hefur hann unnið deildina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni.

„Að sjálfsögðu velti ég því fyrir mér á sýnum tíma að færa mig um set. Þetta var í kringum 2008 eða 2009 þá sýndu mörg stærstu lið Evrópu mér áhuga. Ég hefði getað gengið til liðs við Juventus, Inter, AC Milan, Barcelona, Real Madrid, Manchester United og Chelsea." sagði Ribery.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner