Arnór Gauti Ragnarsson, Alfons Sampsted og Axel Óskar Andrésson skoruðu mörkin gegn Georgíu. Þeir byrja allir í dag.
U21 árs lið karla leikur vináttuleik gegn Sádí-Arabíu í dag. Leikurinn sem fer fram á Ítalíu hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.
Leikurinn er þriðji og síðasti vináttuleikur liðsins á einni viku en tveir leikir gegn Georgíu fóru fram í síðustu viku og um helgina.
Fyrri leikurinn tapaðist 1-3 en þeim síðari lauk með jafntefli 4-4 þar sem Georgíumenn skoruðu tvívegis í lokin.
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðsins, hefur valið byrjunarliðið fyrir leikinn og er það skipað eftirtöldum leikmönnum.
Markvörður Sindri Kristinn Ólafsson
Vörn: Alfons Sampsted, Axel Óskar Andrésson, Hans Viktor Guðmundsson, Sindri Scheving
Miðja: Ásgeir Sigurgeirsson, Viktor Karl Einarsson, Grétar Snær Gunnarsson, Jón Dagur Þorsteinsson
Sókn: Albert Guðmundsson fyrirliði og Arnór Gauti Ragnarsson
Athugasemdir