Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. mars 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Smalling og Jones báðir fjarverandi á næstunni?
Chris Smalling.
Chris Smalling.
Mynd: Getty Images
Chris Smalling og Phil Jones komu báðir meiddir til baka til Manchester United eftir verkefni með enska landsliðinu.

Jones meiddist á tá eftir baráttu við Smalling á landsliðsæfingu í síðustu viku og í kjölfarið missti hann bæði af leikjunum gegn Þýskalandi og Litháen.

Jones á að fara í nánari skoðun í dag og þá kemur í ljós í hversu margar vikur hann verður frá.

Smalling missti af leiknum gegn Litháen um helgina vegna meiðsla sinna en í dag sást mynd af honum með spelku á fætinum.

Útlitið er því ekki gott með meiðsli hans en Jose Mourinho er nú einungis með þrjá heila miðverði fyrir leikinn gegn WBA á laugardaginn en það eru Eric Bailly, Marcos Rojo og Daley Blind.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner