Seamus Coleman, bakvörður írska landsliðsins og Everton, verður útskrifaður af sjúkrahúsi í dag eftir að hafa undirgengist aðgerð vegna fótbrots.
Þetta sagði Martin O'Neill, landsliðsþjálfari hans hjá Írlandi, eftir að hafa heimsótt kappann á spítalann.
„Seamus líður mikið betur, hann er léttari í lund," sagði O'Neill við blaðamenn eftir 1-0 tapið gegn Íslandi.
„Fjölskyldan styður þétt við bakið á honum og honum líður ágætlega, þetta er ekki eithvað sem þú kemst yfir á einum degi en hann er jákvæður strákur og ef einhver getur komist yfir þetta hratt og örugglega, þá er það Seamus."
Athugasemdir