Mesut Özil er á því máli að honum sé oftast kennt um þegar illa gengur hjá liði hans, Arsenal.
Arsenal hefur gengið frekar illa á þessu tímabili og hefur Özil verið gagnrýndur meira en aðrir leikmenn liðsins.
Arsenal hefur gengið frekar illa á þessu tímabili og hefur Özil verið gagnrýndur meira en aðrir leikmenn liðsins.
„Fólk veit hvað ég hef afrekað," sagði hinn 28 ára gamli Özil í viðtali við þýska blaðið Bild.
„Að ég er heimsmeistari, hef spilað fyrir Real Madrid og þá lagði ég upp 20 mörk á síðasta tímabili (í öllum keppnum)."
„Þegar liðinu gengur illa, þá þarf að kenna einhverjum um, og því miður er skuldinni oftast skellt á mig."
Athugasemdir