Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. mars 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Wenger: Held að Özil og Alexis verði áfram
Alexis Sanchez.
Alexis Sanchez.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist vera bjartsýnn á að Alexis Sanchez og Mesut Özil verði áfram hja félaginu.

Samningaviðræðum beggja leikmanna hefur verið slegið á frest þar til í sumar.

„Ég persónulega trui því að báðir þeirra verði áfram og ég vona að félagið nái samkomulagi við þá," sagði Wenger á fréttamannafundi í dag.

Wenger er sjálfur samningslaus í sumar og mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð hans. Hann hefur ekki ennþá gefið út ákvörðun sína fyrir framhaldið.

„Það er mál sem er ekki búið að ganga algjörlega frá í augnablikinu," sagði Wenger í dag.
Athugasemdir
banner
banner