Santi Cazorla, leikmaður Arsenal, nær ekki að snúa aftur á fótboltavöllinn á þessu tímabili.
Spánverjinn hefur verið frá keppni síðan í október vegna meiðsla á hásin.
Bati Cazorla gengur hægt og nú er ljóst að hann snýr ekki aftur fyrr en á næsta tímabili.
Spánverjinn hefur verið frá keppni síðan í október vegna meiðsla á hásin.
Bati Cazorla gengur hægt og nú er ljóst að hann snýr ekki aftur fyrr en á næsta tímabili.
„Ég held að tímabilið sé búið hjá honum," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi í dag.
Cazorla er 32 ára en hann kom til Arsenal frá Malaga árið 2012.
Athugasemdir