Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. mars 2017 19:30
Alexander Freyr Tamimi
Hazard og Courtois gætu verið með um helgina
Hazard gæti spilað á laugardaginn.
Hazard gæti spilað á laugardaginn.
Mynd: Getty Images
Þeir Eden Hazard og Thibaut Courtois hafa snúið aftur til æfinga hjá Chelsea í kjölfar meiðsla og gætu spilað í leik liðsins gegn Crystal Palace á laugardag.

Hazard, sem hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid í vikunni, dró sig úr landsliðshópi Belgíu í aðdraganda landsleikjahlésins eftir að hafa misst af 2-1 sigri Chelsea gegn Stoke vegna meiðsla á kálfa. Courtois spilaði í jafntefli Belgíu gegn Grikklandi en sat hjá í vináttuleik gegn Rússlandi á þriðjudagskvöld vegna meiðsla á mjöðm.

Samlandarnir gátu þó báðir æft í dag, knattspyrnustjóranum Antonio Conte til mikillar gleði. Lærisveinar Conte eru með 10 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner