þri 22. febrúar 2005 08:24
Hafliði Breiðfjörð
Leeds berst við Mallorca um íslenskan dreng
Marko Pavlov á æfingasvæði Mallorca í fyrrasumar
Marko Pavlov á æfingasvæði Mallorca í fyrrasumar
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Leeds United hafa bætst í slaginn við Mallorca um að fá í sínar raðir íslenska drengjalandsliðsmanninn Marko Pavlov.

Pavlov er sonur Dragi Pavlov sem hefur verið hjá Stjörnunni undanfarin ár og er Marko með íslenskan ríkisborgararétt. Við höfum áður greint frá leikmanninum í fyrrasumar þegar Mallorca frá Spáni vildi fá leikmanninn sem er að serbneskum uppruna í sínar raðir.

Ekkert varð af því þá þar sem hann er aðeins 16 ára gamall en spænsk félög mega ekki semja við leikmenn fyrr en þeir ná 17 ára aldri. Pavlov verður 17 ára í næsta mánuði og því er barátta stórliðanna um leikmanninn að hefjast.

Njósnari Leeds United sá Marko spila með U-17 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu í Finnlandi og hringdi nú á dögunum í föður hans og lét í ljós áhuga félagsins á leikmanninum og bauð honum að koma og æfa með félaginu.

Eins og staðan er í dag er Mallorca fyrsti valkostur hjá leikmanninum en hann mun fara til æfinga hjá spænska félaginu í mars þegar hann nær 17 ára aldrinum. Allir möguleikar eru þó opnir hjá Marko en auk Leeds og Mallorca hafa Real Sociedad og Club Brugge sýnt honum áhuga. Það eru greinilega spennandi tímar framundan hjá leikmanninum sem er mjög eftirsóttur.

Sjá einnig frétt okkar af Marco frá síðasta sumri:
Íslenskur strákur sem var til reynslu hjá Mallorca er eftirsóttur
Slapp
banner
banner