David Luiz, leikmaður Chelsea, segir að allir leikmenn Tottenham séu eins og skrímsli á stærð.
Tottenham og Chelsea mætast í undanúrslitum enska bikarsins á morgun en þessi lið eru einnig að berjast um titilinn í ensku úrvalsdeildinni.
Tottenham og Chelsea mætast í undanúrslitum enska bikarsins á morgun en þessi lið eru einnig að berjast um titilinn í ensku úrvalsdeildinni.
„Þeir eru ótrúlegt lið með ótrúlegan þjálfara í Mauricio Pochettino," sagði Luiz.
„Þeir eru líkamlega sterkasta liðið í deildinni. Allir 11 leikmennirnir eru skrímsli. Ég elska þetta lið."
„Þetta verður erfiður leikur fyrir okkur. Við þurfum að vera tilbúnir að spila gegn einu af bestu liðunum í þessari deild. Það var samt alltaf ljóst að þetta yrði erfitt þegar þú kemst í undanúrslit."
Athugasemdir