Karabuksport 0 - 0 Kasimpasa
Ólafur Ingi Skúlason og félagar hans í tyrkneska liðinu Karabukspor mættu Kasimpasa í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Karabukspor var fyrir leik 11 stigum frá fallsæti þegar sjö umferðir voru eftir. Liðið er því í ágætis málum.
Leikurinn í dag fór þannig að ekkert mark var skorað og liðin þurftu því að skiptast jafnan hlut, stigalega séð.
Ólafur Ingi, sem er íslenskur landsliðsmaður, lék allan leikinn á miðjunni hjá Karabukspor, sem er núna 12 stigum frá fallinu.
Athugasemdir