Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. apríl 2017 22:40
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Enrique jafnar met Guardiola í El Clasico
Mynd: Getty Images
Luis Enrique jafnaði í kvöld met Pep Guardiola í El Clasico en þeir tveir eru þeir einu til þess að vinna tvo leiki í röð gegn Real Madrid á Santiago Bernabeu.

Barcelona vann Real Madrid í ótrúlegum leik í kvöld, 3-2 en Lionel Messi tryggði Barcelona sigurinn í síðustu spyrnu leiksins.

Guardiola vann tvo leiki í röð á Bernabeu árið 2009 í ótrúlegum 6-2 sigri og árið 2010 í 2-0 sigri.

Enrique stýrði Barcelona í 4-0 sigri í fyrra og svo magnaði leikurinn í kvöld. Enrique mun hætta með Barcelona í lok tímabilsins.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid var að tapa sínum fyrsta El Clasico leik.



Athugasemdir
banner
banner