Gareth Bale var tekinn af velli í fyrri hálfleik þegar Real Madrid tapaði fyrir Barcelona í El Clasico um liðna helgi.
Bale er meiddur og verður ekki með Real í einvíginu gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Bale er meiddur og verður ekki með Real í einvíginu gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Bale var greinilega ekki alveg heill fyrir leikinn gegn Börsungum en var samt látinn spila og það kom í bakið á Madrídingum.
Bale er meiddur á kálfa og spilar ekki næstu þrjár vikurnar.
Auk leikjanna gegn Atletico mun Bale missa af leikjum gegn Deportivo La Coruna, Valencia, Granada, Sevilla og Malaga.
Real Madrid er í harðri baráttu um spænska meistaratitilinn en stöðuna í La Liga má sjá hér að neðan.
Athugasemdir