„Þetta er hálfgerður dauðariðill fyrir mér," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðsfyrirliði, við Fótbolta.net í dag.
Dregið var í undankeppni HM í hádeginu en Ísland verður með Þýskalandi, Tékklandi, Slóveníu og Færeyjum í riðli.
Dregið var í undankeppni HM í hádeginu en Ísland verður með Þýskalandi, Tékklandi, Slóveníu og Færeyjum í riðli.
Efsta liðið í riðlinum fer beint á HM í Frakklandi 2019 en þau fjögur lið sem hafa bestan árangur í öðru sæti fara í umspil um síðasta lausa sæti Evrópu.
„Þetta er erfiður riðill. Við erum ekkert að fela það neitt. Þýska liðið er besta lið í heimi en það er gaman að fá þær hingað í heim. Þetta er verðugt verkefni og gefur okkur tækifæri til að vinna besta landslið í heimi."
Þýskaland er Ólympíumeistari en á íslenska liðið séns gegn þeim? „Það er ekki spurning. Þetta verður erfitt en það er alltaf séns," sagði Margrét.
Hér að ofan má sjá Margréti Láru ræða riðilinn.
Athugasemdir