banner
   mið 26. apríl 2017 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Mirror 
Kante fannst Mane bestur á tímabilinu
Kante og Mane eigast við á síðustu leiktíð er þeir léku með Leicester og Southampton.
Kante og Mane eigast við á síðustu leiktíð er þeir léku með Leicester og Southampton.
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante leikmaður Chelsea var á dögunum útnefndur leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni en það eru leikmenn sjálfir sem velja.

Þessi 26 ára gamli miðjumaður var frábær með Leicester þegar liðið varð Englandsmeistari í fyrra og hefur ekkert slegið slöku við eftir að hann fór í Chelsea. Hann er enn betri í ár og á stóran þátt í að Chelsea er komið langt með að landa titlinum.

Hann mátti ekki kjósa sjálfan sig eða liðsfélaga sinn og sagði í viðtali við Chelsea TV að hann hafi kosið Mane framherja Liverpool sem skoraði 13 mörk á tímabilinu.

„Ég tel að þessi verðlaun séu fyrir þetta tímabil og síðasta tímabil og ég vil þakka öllum sem völdu mig í lið tímabilsins sem varð til þess að ég fékk þessi verðlaun, það skiptir mig miklu," sagði Kante.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner