Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. apríl 2017 06:00
Elvar Geir Magnússon
Hvort leikur Bayern eða Dortmund í bikarúrslitum?
Branimir Hrgota glaður.
Branimir Hrgota glaður.
Mynd: Getty Images
Í kvöld mun Bayern München taka á móti Borussia Dortmund í undanúrslitum þýska bikarsins þar sem leikið verður til þrautar. Leikurinn verður 18:45.

Sigurliðið mun mæta Eintracht Frankfurt í úrslitum en Frankfurt vann Borussia Mönchengladbach í vítaspyrnukeppni í gær.

Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1. Taleb Tawatha kom Frankfurt yfir en Jonas Hofmann jafnaði.

Ekkert var skorað í taugastrekkjandi framlengingu og vann Frankfurt svo 7-6 sigur í vítaspyrnukeppni.

Það ræðst í kvöld hvort af stórliðunum mun mæta Frankfurt í úrslitaleiknum sem verður þann 27. maí.
Athugasemdir
banner
banner