Landsliðsframherjinn og Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Maccabi Tel Aviv í gær.
Maccabi Tel Aviv, lið Viðars, vann þá 3-1 útisigur gegn Bnei Sakhnin í ísraelsku úrvalsdeildinni.
Maccabi Tel Aviv, lið Viðars, vann þá 3-1 útisigur gegn Bnei Sakhnin í ísraelsku úrvalsdeildinni.
Viðar skoraði á 57. og 89. mínútu í leiknum og hjálpaði sínum mönnum að landa stigunum þremur.
Viðar hafði verið í smá lægð í markaskorun en fann marknetið í gær.
Maccabi er í öðru sæti deildarinnar, átta stigum frá toppliði Hapoel Beer Sheva sem vann 1-0 sigur á Maccabi Haifa í gærkvöldi.
Smelltu hér til að sjá myndband af mörkum Viðars, en þau koma á 2:17 og 3:37 í myndbandinu.
Athugasemdir