Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 28. apríl 2017 11:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bartra ánægður með árangurinn
Marc Bartra, leikmaður Dortmund
Marc Bartra, leikmaður Dortmund
Mynd: Getty Images
Marc Bartra, varnarmaður Dortmund segist vera ánægður með endurhæfinguna en hann þurfti að fara í aðgerð á úlnlið eftir að sprengja sprakk við rútu félagsins fyrir leik í Meistaradeild Evrópu.

Fyrir fyrri leik Dortmund og Monaco í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, þann 11. apríl sprakk sprengja við rútu Dortmund sem varð til þess að Bartra meiddist.

Bartra var sá eini sem meiddist í árásinni en fresta þurfti leiknum um einn dag.

Bartra birti mynd af sér, bæði á Twitter og Instagram þar sem hann sést í gulu og svörtu gifsi, litum Dortmund.

„Ánægður með árangurinn," sagði Bartra undir myndinni.

Spænski landsliðsmaðurinn verður líklega frá í mánuð í viðbót.



Athugasemdir
banner
banner