Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. apríl 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mata og Pogba hrekktir af liðsfélögum sínum
"Joanne Mata"
Mynd: Getty Images
Paul Pogba og Juan Mata lentu í skemmtilegum hrekk á dögunum. Þar voru þeir hrekktir af liðsfélögum sínum, Ashley Young og Jesse Lingard ásamt bandarískum aðdáanda United.

Pogba og Mata héldu að þeir væru að taka upp með Chevrolet TV, en Chevrolet er einn aðalstuðningsaðili United. Merki bílaframleiðandans er m.a. á treyjum félagsins.

Þáttastjórnandinn er fullur af orku, en hann ber nöfn leikmannanna vitlaust fram. Hann kallar Mata "Joanne Mata" og Pogba "Paul Drogba". Þeir höfðu báðir mjög gaman af þessu.

Báðir leikmenn eru í augnablikinu meiddir. Pogba missti af síðasta leik geng Man City og spilar væntanlega ekki á morgun gegn Swansea. Mata verður væntanlega frá út tímabilið.

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband.


Athugasemdir
banner
banner
banner