Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 30. apríl 2017 06:30
Benóný Þórhallsson
Myndaveisla: GG og Þróttur Vogar mættust í Borgunarbikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
GG og Þróttur Vogar mættust í suðurnesjaslag í gær.

GG spilar í fjórðu deildinni í sumar á meðan Þróttur stefnir á toppbaráttu í þriðju deild.

Það var Andri Björn Sigurðsson sem kom gestunum yfir af stuttu færi eftir fína fyrirgjöf. Aðeins 8 mínútum seinna kom Elvar Freyr Arnþórsson boltanum yfir línuna í þriðju tilraun eftir mikinn darraðadans í teignum.

Eftir Baráttufrekann síðari hálfleik bætti svo Andri Björn Sigurðsson við sínu öðru marki eftir að hafa fylgt vel á eftir skoti Þróttara. Staðan orðin 0-3 og þar við sat.

Benóný Þórhallsson var á vellinum og tók myndirnar hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner