Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 30. apríl 2017 13:17
Kristófer Kristjánsson
Gylfi Sig: Old Trafford hefur reynst mér vel
Gylfi Sigurðsson skoraði glæsimark á Old Trafford í dag
Gylfi Sigurðsson skoraði glæsimark á Old Trafford í dag
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson var að vonum sáttur eftir að hafa tryggt Swansea dýrmætt stig á Old Trafford gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Wayne Rooney hafði komið heimamönnum yfir með marki af vítapunktinum áður en Gylfi jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka með glæsilegu aukaspyrnumarki en hann hefur skorað á Old Trafford í síðustu þremur leikjum sínum þar.

„Það hefur gengið vel hérna undanfarin þrjú ár og ég hef skorað í hverjum leik," sagði Gylfi við BT Sport en hann var valinn maður leiksins.

„Þetta var mikilvægt mark og þetta gæti reynst stórt stig í lok tímabils."
Athugasemdir
banner
banner
banner