Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 30. apríl 2017 13:50
Kristófer Kristjánsson
Shaw og Bailly bætast á meiðslalista Man Utd
Eric Bailly var eini heili hafsent Man Utd þangað til hann fór meiddur af velli í dag
Eric Bailly var eini heili hafsent Man Utd þangað til hann fór meiddur af velli í dag
Mynd: Getty Images
Luke Shaw og Eric Bailly, varnarmenn Man Utd, fóru báðir af velli vegna meiðsla í 1-1 jafntefli liðsins gegn Swansea á Old Trafford í dag.

Þeir Zlatan Ibrahimovic, Paul Pogba, Marcos Rojo, Chris Smalling og Phil Jones eru nú þegar frá en Juan Mata er nýkominn aftur í leikmannahópinn.

Luke Shaw entist aðeins í átta mínútur áður en hann haltraði af velli en hann var að byrja sinn níunda deildarleik á tímabilinu.

Þessi 21 árs bakvörður hefur verið mikið hrjáður af meiðslum síðan hann kom til félagsins en hann fótbrotnaði á síðasta tímabili.

Fílbeinsstrendingurinn Eric Bailly meiddist síðan á ökkla í síðari hálfleik en hann hefur verið eini heili hafsent liðsins síðan að þeir Marcos Rojo, Phil Jones og Chris Smalling allir meiddust.

Ekki er vitað um alvarleika meiðsla þeirra en ljóst er að leikmannahópur liðsins er orðinn ansi þunnur.
Athugasemdir
banner
banner