Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 30. apríl 2017 16:11
Kristófer Kristjánsson
Stjörnumenn kjósa um Evrópubúning
Stjarnan tekur þátt í Evrópudeildinni í sumar
Stjarnan tekur þátt í Evrópudeildinni í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Stjarnan endaði í öðru sæti Pepsi deildarinnar í fyrra og tryggði sér þar með þáttöku í Evrópudeildinni í sumar.

Stjörnumenn ætla að fara heldur nýstárlega leið í vali á búning fyrir keppnina en hægt er að kjósa um útlit hans á internetinu.

Það koma fimm treyjur til greina og hægt er að taka þátt í kosningunni með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

Smelltu hér til að kjósa.

Stjarnan hefur keppni í Pepsi deildinni á morgun, verkalýðsdaginn, þegar liðið heimsækir Grindavík en þá leikur liðið í sínum hefðbundnu bláu búningum.

Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner