Þrír leikir fóru fram í deildabikarnum hér heima í gær. Breiðablik rúllaði yfir lið Grindvíkinga með 4-1 sigri, FH og Þróttur skildu jöfn 1-1 og í síðasta leik dagsins vann Valur lið Fylkis 3-2.
Markvörðurinn Valþór Halldórsson lék á kantinum með FH |
Þetta var fyrsti leikur Þróttara í mótinu en annar leikur FH sem einnig gerði 1-1 jafntefli í sínum fyrsta leik gegn KR. Jónas Grani Garðarsson kom FH yfir eftir 24. mínútna leik en Henning Jónasson jafnaði metin á 58. mínútu fyrir Þróttara og þar við sat. Serbinn Dusan Jaic lék þarna sinn fyrsta leik fyrir Þróttara.
Sverrir Garðarsson miðvörður FH meiddist í lok leiksins og þar sem allir varamennirnir voru búnir hjá FH nema varamarkvörðurinn var aðeins eitt að gera hjá FH. Valþór Halldórsson varamarkvörður spilaði einfaldlega síðustu 5 mínúturnar og uppbótartíma á kantinum.
Gummi Ben skoraði tvö fyrir Val gegn Fylki |
Kjartan Sturluson markvörður Vals mætti þarna sínum gömlu félögum í Fylki í annað sinn á árinu en áður hafði það gerst í Reykjavíkurmótinu. Guðmundur Benediktsson kom Val í 0-1 eftir aðeins fjögurra mínútuna leik og þannig var staðan í hálfleik.
Guðmundur bætti öðru marki við á 65. minútu en Finnur Kolbeinsson minnkaði muninn á 83. mínútu. Mínútu síðar bætti Bjarni Ólafur Eiríksson þriðja markinu við fyrir Valsmenn og á 88. mínútu minnkaði Hrafnkell Helgason metin í 3-2 með marki úr vítaspyrnu en það var síðasta mark leiksins.
Björn Orri Hermannsson, ungur Fylkismaður fæddur árið 1989 kom inná sem varamaður í leiknum en þar fer leikmaður sem hefur vakið athygli erlendra liða með frammistöðu sinni hjá yngri flokkum Fylkis og æfði þannig með Ipswich fyrr í mánuðinum.
Óli Stefán skoraði úr umdeildri vítaspyrnu |
Breiðablik 4-1 Grindavík:
Óvæntu úrslitin urðu í Fífunni í Kópavoginum þar sem heimamenn í Breiðablik rúlluðu yfir Grindavík. Olgeir Sigurgeirsson kom Blikum yfir með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að brotið var á Steinþóri Frey Þorsteinssyni. Blikar komust svo í 2-0 með sjálfsmarki Grindvíkinga sem hafði komið eftir að Kristján Óli Sigurðsson sendi boltann fyrir.
Steinþór skoraði svo þriðja mark Blika eftir að hafa leikið á þrjá leikmenn Grindvíkinga áður en hann afgreiddi boltann í netið en Óli Stefán Flóventsson minnkaði muninn fyrir Grindvíkinga úr umdeildri vítaspyrnu, staðan orðin 3-1. Það var svo Hjalti Kristjánsson sem skoraði fjórða mark Blika og síðasta mark leiksins.
Athugasemdir