Herrakvöld KR fer fram í kvöld í KR-heimilinu. Húsið opnar kl. 19:00. Miðar eru seldir í KR-heimilinu og er miðaverð 3900 kr.
Veislustjóri er Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og ræðumaður kvöldsins er Gísli Einarsson fyrrverandi ritstjóri Skessuhorns.Jóhannes ,,eftirherma" Kristjánsson mun svo fara með gamanmál.
Að loknu borðhaldi mun svo Sálin hans jóns míns með Stefán Hilmarsson í broddi fylkingar stíga á stokk. Ballið hefst kl. 23:30 og stendur til 03:00. Aðgangseyrir 1500 kr.


