Fjalar Þorgeirsson markmannsþjálfari Stjörnunnar og Sportland halda tvö markmannsnámskeið í júní.
Það fyrra verður 8.-16. júní og það seinna verður 19.-23. júní. Æft verður á virkum dögum.
Allir á námskeiðunum fá að fylgjast með markmönnum kvennalandsliðsins á æfingu mánudaginn 12. júní.
Það fyrra verður 8.-16. júní og það seinna verður 19.-23. júní. Æft verður á virkum dögum.
Allir á námskeiðunum fá að fylgjast með markmönnum kvennalandsliðsins á æfingu mánudaginn 12. júní.
Markmenn úr öllum félögum á aldrinum 8-16 ára eru velkomnir. Námskeiðið er bæði fyrir stelpur og stráka.
Iðkenndum verður skipt í hópa eftir aldri og getu á námskeiðinu.
Aðalþjálfari verður Fjalar Þorgeirsson markmannsþjálfari Stjörnunnar og Íþróttafræðingur.
Aðstoðarþjálfari verður Sveinn Sigurður Jóhannesson markvörður úr Stjörnunni.
Allar æfingar á námskeiðinu fara fram á Hofstaðavelli í Garðabæ.
Verð á fyrra námskeiðið (7 dagar) er 16.900 kr.
Verð á seinna námskeiðið (5 dagar) er 11.900 kr.
Verð á bæði námskeiðin er 25.000 kr.
Skráning á [email protected]
Athugasemdir