Það er áhugaverður toppslagur í Garðabænum á sunnudagskvöld þegar Stjarnan mætir KA.
„Það verður mjög gaman, toppslagur. Það verður gaman að fá KA í heimsókn. Þeir hafa öfluga stuðningssveit og við höfum það líka. Eigum við ekki að segja að það verði yfir 2.000 manns á vellinum," segir Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar.
Stuðningssveitirnar hafa verið að skjóta á hvor aðra á Twitter í aðdraganda leiksins.
„Það gefur þessu aukið gildi að það sé hiti þar líka. Það verður barátta á vellinum og í stúkunni. Eigum við ekki að segja að við höfum betur á báðum vígstöðvum?"
„Þjálfararnir hafa verið að undirbúa okkur vel fyrir leikina og það hefur í raun ekkert komið okkur á óvart við leik andstæðingana. Það verður væntanlega engin undantekning á því á sunnudag."
„Þeir hafa skorað slatta af mörkum og við erum markahæsta liðið í Pepsi-deildinni eins og staðan er núna. Ég lofa mörkum. Það á að vera gott veður. Við erum búnir að vera óheppnir með veður í byrjun og þessi Vogaleikur (1-0 útisigur gegn Þrótti Vogum í bikarnum í vikunni) var bull í rauninni. Vonandi verður betra veður á sunnudaginn!"
„Mér finnst Íslandsmótið fara mjög skemmtilega af stað. Það eru óvænt úrslit og krísa á nokkrum stöðum meðan allt leikur í lyndi á öðrum stöðum. Lið eru að koma á óvart og fullt af mörkum skoruð. Liðin leggja meira í sölurnar hvað sóknarleikinn varðar og það er vel," segir Eyjólfur.
sunnudagur 21. maí
14:00 Víkingur Ó.-ÍBV (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
20:00 Stjarnan-KA (Samsung völlurinn)
mánudagur 22. maí
19:15 FH-Fjölnir (Kaplakrikavöllur)
19:15 ÍA-Grindavík (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Valur-KR (Valsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir