Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 23. maí 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staðfestir að Tielemens sé á förum í sumar
Tielemans fer frá Anderlecht.
Tielemans fer frá Anderlecht.
Mynd: Getty Images
Herman Van Holsbeeck, stjóri íþróttamála hjá Anderlecht, hefur staðfest það að miðjumaðurinn Youri Tielemans sé á förum í sumar.

Þessi tvítugi leikmaður þykir mikið efni, en hann hefur verið orðaður við Manchester United, Inter og Atletico Madrid að undanförnu.

Manchester United hefur lengi fylgst með leikmanninum, en hann spilaði vel gegn rauðu djöflunum í tveimur leikjum í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í síðasta mánuði.

„Youri Tielemans mun fara frá Anderlecht. Við munum gefa út tilkynningu um hann á næstu mánuðum," sagði Van Holsbeeck.

„Það eru enn nokkur smáatriði sem þarf að ganga frá, en hann verður væntanlega farinn frá félaginu í vikulok."

Chelsea og Man City voru líka sögð áhugasöm um hann, en það eru allar líkur á því að það sé Mónakó sem hefur unnið kapphlaupið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner