banner
   þri 23. maí 2017 21:30
Stefnir Stefánsson
Keown: Alexis er erfiður viðureignar og kröfuharður
Erfiður
Erfiður
Mynd: Getty Images
Martin Keown fyrrum leikmaður Arsenal lét hafa eftir sér áhugaverð ummæli um Alexis Sanchez leikmann Arsenal. En hann sagði að hann væri erfiður að eiga við og mjög kröfuharður einstaklingur.

Alexis sem var frábær fyrir Arsenal á nýafstöðnu tímabili. Hann skoraði 24 mörk og lagði upp önnur 10. Þrátt fyrir allt mótlætið sem gekk á í kringum liðið og þá sér í lagi stjóra hans Arsene Wenger.

„Ég held að hann sé mjög erfiður einstaklingur að eiga við" sagði Keown um Alexis og bætti svo við, „Ég mætti á æfingasvæðið eitt sinn og Alexis átti frídag en samt mætti hann og var hoppandi og skoppandi um völlinn" sagði Keown.

„Þeir þurftu að setja upp sér æfingu bara fyrir hann. Það getur verið góður hlutur en það sýnir að hann er mjög kröfuharður einstaklingur." sagði Keown að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner