Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. maí 2017 22:56
Magnús Valur Böðvarsson
Heimild: Úrslit.net 
4.deild: Hamar, Kría og Kórdrengir með sigur
Bæði Hamarsmenn og Kríumenn unnu sína leiki í kvöld
Bæði Hamarsmenn og Kríumenn unnu sína leiki í kvöld
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Arilíus Marteinsson Suðurlands eina von samkvæmt lagi Ingó Þórarinssonar jafnaði fyrir Stokkseyri
Arilíus Marteinsson Suðurlands eina von samkvæmt lagi Ingó Þórarinssonar jafnaði fyrir Stokkseyri
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fjórir leikir fóru fram í 4.deild karla í kvöld og voru úrslitin nokkurn veginn eftir bókinni miðað við spá sérfræðinga Fótbolta.net um deildina.
Hamar vann Ísbjörninn örugglega og gjörsigruðu nýliðar Kórdrengjanna heimamenn í Snæfelli þá sigruðu liðsmenn Kríunnar sigur á GG

Í eina leik B riðils skildu Stokkseyri og Vatnaliljur jöfn

A-riðill Hamri var spáð öðru sæti í A riðlinum og fara vel af stað með auðveldum sigri gegn liði Ísbjarnarins sem spáð var 7.sætinu. Snæfelli var spáð 8. og neðsta sætinu í A riðlinum og miðað við úrslit kvöldsins gæti það orðið niðurstaðan. Kórdrengjum var spáð 6.sætinu en þeir stefna greinilega lengra en það. GG var spáð 4.sætinu og Kríu því fimmta og var leikur þeirra jafn en endaði með sigri heimamanna.

Hamar 4 - 1 Ísbjörninn
1-0 Einar Daníelsson (sjálfsmark 17')
1-1 Egill Eiríksson (27')
2-1 Sigurður Andri Jóhannsson (68')
3-1 Samuel Andrew Malsom (87')
4-1 Samuel Andrew Malsom (88')

Snæfell/UDN 1 - 11 Kórdrengir
0-1 Joost Haandrikman (16')
0-2 Sigurður Gísli Snorrason (19')
0-3 Atli Freyr Gíslason (24')
0-4 Joost Haandrikman (27')
0-5 Joost Haandrikman (36')
0-6 Friðrik Elí Bernhardsson (48')
0-7 Viktor Unnar Illugason (54')
0-8 Francis Jeremy Aclipen (72')
0-9 Friðrik Elí Bernhardsson (78')
0-10 Hannes Hjörvar Ragnarsson (80')
0-11 Daníel Már Pálsson (88'víti)
1-11 Davidas Leskys (90' víti)
Rauð spjöld Dariusz Vota (Snæfelli 66') Sverrir Þór Garðasson (Kórdrengir 73')

Kría 3 - 2 GG
1-0 Baldvin Benediktsson (26')
1-1 Jóhann Helgason (33')
2-1 Aron Gauti Kristjánsson (58')
3-1 Axel Fannar Sveinsson (63')
3-2 Nathan Ward (83')

B - riðill
Í eina leik B riðils í kvöld skildu Stokkseyri og Vatnaliljur jöfn þar sem Suðurlands eina von, Arilíus Marteinsson jafnaði metin fyrir heimamenn. Stokkseyringum var einungis spáð 7.sætinu í riðlinum á meðan Vatnaliljum var spáð því fjórða.

Stokkseyri 1 - 1 Vatnaliljur
0-1 Victor Páll Sigurðsson (42'víti)
1-1 Arilíus Marteinsson (74')


Úrslit og markaskorar eru fengnir af úrslit.net
Athugasemdir
banner
banner