„Ef maður ætlar alla leið í þessari keppni þá verður maður að vera tilbúinn að mæta hverjum sem er," sagði Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, eftir að dregið var í 16-lið úrslit í Borgunarbikarnum í dag.
Rakel mætir sínum gömlu félögum í Þór/KA en hún sá um að draga andstæðing fyrir Breiðablik í dag.
„Það er svo langt síðan að ég fór að það eru fáar stelpur ennþá þarna sem ég spilaði með," sagði Rakel um leikinn sem er framundan.

Breiðablik mætir KR í 6. umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld. KR er án stiga fyrir leikinn. Má tala um skyldisigur fyrir Blika?
„Ég held að það sé ekki hægt að tala um skyldusigur í þessari deild. Þetta er búið að vera mjög jafnt og það geta allir unnið alla. Maður þarf að koma í hvern leik af fullum krafti."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir