Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Manchester United á Englandi, bauð fólk velkomið á Vina-velli í Stokkhólmi fyrir úrslitaleik Ajax og United, en hann skírði þó völlinn upp á nýtt.
Zlatan, sem hefur gert 28 mörk í 46 leikjum fyrir United, er ekki með í kvöld vegna meiðsla.
Hann er frá næstu mánuði eftir meiðsli á hné en hann er þó mættur til að styðja sitt lið á Vinavöllum.
Hann hefur leikið þar oft með sænska landsliðinu en skírði þó völlinn Zlatan-Arena á Instagram-síðu sinni.
Athugasemdir