Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, hefur unnið tólf úrslitaleiki af fjórtán sem hann hefur tekið þátt í.
Mourinho gerði Manchester United að meisturum í Evrópudeildinni í kvöld en liðið sigraði Ajax 2-0.
Paul Pogba og Henrik Mkhitaryan gerðu mörkin en þetta var tólfti sigur Mourinho í úrslitaleikjum af fjórtán leikjum.
Liðin sem hann hefur stýrt í úrslitum hafa skorað 26 mörk samtals og haldið átta sinnum hreinu.
Magnað afrek hjá portúgalska stjóranum en United vann einnig deildabikarinn fyrr á tímabilinu og er nú komið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir