Sífellt fleiri ungir íslendingar vekja athygli á sér fyrir knattspyrnuhæfileika. Til gamans ákváðum við á Fótbolti.net að setja saman lið með hjálp nokkurra ónafngreindra einstaklinga sem samanstendur af efnilegum leikmönnum hér á landi sem eru í kringum 17 ára aldurinn.
Þetta lið er aðeins sett saman til gamans og er enginn úrskurður um að þessir leikmenn séu eitthvað betri en einhverjir aðrir.
Reynt var að hafa sem mesta fjölbreytni og taka leikmenn úr sem flestum liðum, það tókst vel og er ekki fleiri en einn úr hverju liði.
Aðeins var horft til leikmanna sem leika hér á landi.
Við hvetjum fólk til að leggja nöfn þessara leikmanna á minnið, þeir eru líklegir til að vekja á sér athygli í íslenska boltanum og jafnvel erlendis. Reyndar hafa sumir þeirra þegar sýnt og sannað hvað þeir geta og skapað sér nafn.
Atli Jónasson (KR) (fæddur 1988) 8 U17 landsleikir
Stórefnilegur markvörður sem hefur allt að bera til að verða í fremstu röð. Er varamarkvörður hjá meistaraflokki KR fyrir Kristján Finnbogason og ættu Vesturbæingar ekki að þurfa að hafa áhyggjur þegar Kristján ákveður að leggja skóna á hilluna.
Þorvaldur Sveinn Sveinsson (Víkingur) (fæddur 1988) 7 U17 landsleikir, 1 mark
Leikmaður sem er farinn að banka fast á dyrnar hjá meistaraflokki Víkings. Var í Reykjavíkurúrvalinu sem keppti á Borgarleikum í Graz í Austurríki. Skoraði m.a. fyrir U17 landsliðið í leik gegn Litháen í fyrra. Líklegur til enn frekari afreka.
Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir R.) (fæddur 1988) 1 U17 landsleikur
Hefur mikinn líkamsstyrk þrátt fyrir ungan aldur. Traustur varnarmaður sem átti ekki í erfiðleikum með marga úrvalsdeildarsóknarmenn í leikjum Leiknis í Reykjavíkurmótinu þar sem hann var einn allra besti leikmaður liðsins. Hefur leikið með meistaraflokki tvö síðustu ár.
Pétur Örn Gíslason (Haukar) (fæddur 1987) 8 U17 landsleikir
Lék 8 leiki með Haukum í 1.deildinni síðasta sumar og verður líklega byrjunarliðsmaður hjá þeim í sumar. Stór og sterkur leikmaður, góður skallamaður. Er mjög ákveðinn, vel hægt að líkja honum við ekta enskan varnarmann.
Agnar Bragi Magnússon (Fylkir) (fæddur 1987) 3 U17 landsleikir
Bragi var í byrjunarliði Fylkis í síðasta leik þeirra í Deildabikarnum. Hávaxinn leikmaður með mjög góðan leikskilning. Hann er mjög góður á bolta og á án efa eftir að láta til sín taka enn frekar með meistaraflokki Fylkis.
Arnar Már Guðjónsson (ÍA) (fæddur 1987) 5 U17 landsleikir
Á sínu fyrsta ári í 2.flokki var Arnar Már strax lykilmaður í flokknum sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Arnar skoraði í úrslitaleik bikarsins og einnig í leiknum þar sem Skagamenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Mjög hugmyndaríkur leikmaður með góða tækni, á frábærar sendingar. Þar að auki mikill baráttuhundur.
Marko Pavlov (Stjarnan) (fæddur 1988) 6 U17 landsleikir
Sonur Dragi Pavlov sem þjálfar hjá Stjörnunni. Stórefnilegur leikmaður sem þegar er farinn að vekja mikla athygli. Hann hefur verið orðaður við spænska liðið Mallorca en þangað fór hann út til reynslu, í síðasta mánuði var honum síðan boðið til æfinga hjá enska liðinu Leeds. Pavlov er af serbneskum uppruna en með íslenskan ríkisborgararétt.
Bjarki Már Sigvaldason (HK) (fæddur 1987) 7 U17 landsleikir, 1 mark
Bjarki Már er rosalega vel spilandi leikmaður en hann lék 17 af 18 leikjum HK sem var í toppbaráttu 1.deildar síðasta sumar. Hann hefur farið víða út til reynslu, m.a. hjá Bolton og norska liðinu Brann. Skoraði tvö mörk í 1.deildinni í fyrra.
Heiðar Geir Júlíusson (Fram) (fæddur 1987) 6 U17 landsleikir - 2 U19 landsleikir
Hefur þegar vakið mikla athygli en hann lék 16 af 18 leikjum fram í efstu deild í fyrra og skoraði eitt mark. Hleypur gríðarlega hratt og er nánast allstaðar á vellinum. Hann berst fram í rauðan dauðan og var einn af fáum ljósum punktum hjá Framliðinu í fyrra, til að mynda stjórnaði hann miðju liðsins í leik í Grindavík!
Matthías Vilhjálmsson (FH) (fæddur 1987) 10 U17 landsleikir, 3 mörk
Þessi strákur vakti athygli með liði BÍ frá Ísafirði en hann spilaði lykilhlutverk með liðinu í 3.deild sumarið 2003. Hann gekk til liðs við FH fyrir síðasta sumar og þrátt fyrir að hafa enn ekki komist að hjá meistaraflokki er það bara tímaspursmál hvenær svo verður. Hann er feykilega sterkur og teknískur leikmaður, er þar að auki góður að klára færin sín.
Kristján Ari Halldórsson (ÍR) (fæddur 1987) 3 U17 landsleikir
Smár en knár leikmaður sem mun leika lykilhlutverk með meistaraflokki ÍR í 2.deildinni. Var potturinn og pannan í sóknarleik liðsins í Reykjavíkurmótinu. Með baneitraðan vinstri fót, rosalegan hraða, mikla tækni og kann svo sannarlega að skora mörk. Á vafalítið eftir að skapa mikla hættu á vinstri kantinum um ókomna tíð.
Þessi grein er enginn úrskurður um getu leikmanna heldur aðeins til gamans gerð. Aðeins var horft til leikmanna sem spila hér á landi.




