Markvörðurinn reyndi Shay Given er á förum frá Stoke en hann fær ekki nýjan samning hjá félaginu.
Hinn 41 árs gamli Given spilaði fimm leiki á nýliðnu tímabili en hann hefur á ferlinum einnig leikið með Newcastle, Manchester City og Aston Villa.
Varnarmennirnir Phil Bardsley og Geoff Cameron voru einnig að renna út af samningi en þeir hafa nú framlengt samninga sína.
Hinn 31 árs gamli Bardsley gerði eins árs samning en Cameron gerði tveggja ára samning.

Stoke hefur einnig boðið Stephen Ireland nýjan samning en hann er að jafna sig eftir ljótt fótbrot.
Athugasemdir