„Fyrst og fremst er ég ánægður með að það sé umræða og áhugi hjá fólki að gera betur, hvort sem þetta er rétt aðferð eða ekki," segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, um þær hugmyndir að fækka í Pepsi-deild kvenna og leika fjórfalda umferð.
Jón Páll Pálmason birti pistil á Facebook með sínum hugmyndum.
Jón Páll Pálmason birti pistil á Facebook með sínum hugmyndum.
„Ég vona að umræðan verði málefnaleg. Ég hef sjálfur ekki myndað mér skoðun og ætla ekki að gera það eftir Evrópumótið. Það er hinsvegar hollt og gott að það sé að skapast umræða um hvað sé best fyrir íslenskan fótbolta," segir Freyr.
Athugasemdir